Sýslumaðurinn á Siglufirði annast málefni sanngirnisbóta.

Sýslumaðurinn á Siglufirði annast málefni sanngirnisbóta. Samkvæmt fréttattilkynningu frá frá dómsmála- og mannréttindaráðuneyti, hefur sýslumanninum á

Fréttir

Sýslumaðurinn á Siglufirði annast málefni sanngirnisbóta.

Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Siglufirði


Samkvæmt fréttattilkynningu frá frá dómsmála- og mannréttindaráðuneyti, hefur sýslumanninum á Siglufirði verið falið að annast þau verkefni sem sýslumanni eru falin samkvæmt lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum.


Í lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum segir að þegar nefnd hafi lokið skýrslu um könnun sína á starfsemi heimilis eða stofnunar skuli ráðherra fela sýslumanni að gefa út innköllun.

Verkefni sýslumanns felst m.a. í því að skora á þá sem telja sig eiga rétt til bóta samkvæmt lögum um sanngirnisbætur að lýsa kröfum sínum með auglýsingu.

Sýslumaður mun jafnframt fara yfir þær kröfur sem berast og taka afstöðu til þeirra. Að því búnu skal hann gera viðkomandi einstaklingi skriflegt og bindandi sáttaboð að höfðu samráði við ráðherra.

Þá hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra falið sýslumanninum á Siglufirði að gera tillögu til ráðuneytis að nánari reglum um viðmið við ákvörðun fjárhæða, meðferð bótakrafna  og önnur atriði sem varða framkvæmd laganna.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu dómsmála - og mannréttindaráðuneytis


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst