Tafir á afhendingu bóluefnis

Tafir á afhendingu bóluefnis Áætlanir um bólusetningu vegna inflúensunnar A(H1N1) raskast vegna tafa á afhendingu bóluefnisFyrirsjáanlegt er að gildandi

Fréttir

Tafir á afhendingu bóluefnis

Áætlanir um bólusetningu vegna inflúensunnar A(H1N1) raskast vegna tafa á afhendingu bóluefnis

Fyrirsjáanlegt er að gildandi áætlun um bólusetningu almennings gegn inflúensunni A(H1N1) raskast verulega vegna þess að minna berst til landsins af bóluefni en gert var ráð fyrir og afhending dregst.




Sóttvarnalæknir hefur nú tilkynnt að
•    bóluefni verður næst dreift til heilsugæslustöðva 15. desember og síðan 6. janúar 2010.
•    heilsugæslustöðvar taka ekki við fleiri tímapöntunum í bólusetningu fyrr en 15. desember, fyrir það bóluefni sem þá verður dreift.

Starfsfólk heilsugæslustöðva bólusetur áfram með því bóluefni sem það hefur til umráða, á meðan það endist. Heilsugæslustöðvar annast endurbókanir tíma fyrir bólusetningu og veita upplýsingar.

Upphaflega var gert ráð fyrir að alls 200.000 skammtar bóluefnis bærust til landsins til áramóta en nú eru horfur á að skammtarnir verði um 170.000. Ástæður tafa við afhendingu bóluefnis eru minni framleiðslugeta framleiðandans en áætlað var, vandamál sem tengjast innpökkun bóluefnis og fleira. Vandinn snertir alla sem bíða eftir bóluefninu, ekki aðeins Íslendinga.

Nú þegar hafa verið bólusettir um 70.000 manns hérlendis og vert er að halda því til haga að þetta er hærra hlutfall þjóðarinnar en þekkist annars staðar, að því best er vitað.

Faraldurinn í rénun
Mjög hefur dregið úr inflúensufaraldrinum hérlendis en landsmenn eru samt eindregið hvattir til þess að láta bólusetja sig þegar því verður við komið.

Frá 23. september til 22. nóvember 2009 voru hátt í 180 manns lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009, þar af um 130 á Landspítala. Á miðvikudaginn var, 25. nóvember, voru fimm inflúensusjúklingar á Landspítala, þar af einn á gjörgæslu.

Tveir hafa látist hérlendis vegna staðfestrar inflúensunnar A(H1N1)v 2009 eða fylgikvilla í kjölfar sýkingarinnar: 18 ára stúlka lést 19. október og 81 árs karlmaður lést 20. nóvember. Þau voru bæði voru með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma.



Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst