Það eru sjómenn á Siglufirði

Það eru sjómenn á Siglufirði Það virðast lítil hátíðarhöld eiga að vera á Siglufirði á sjómannadaginn að sögn Ómars Geirssonar varaformanns

Fréttir

Það eru sjómenn á Siglufirði

Ólafur Gunnarsson skipstjóri
Ólafur Gunnarsson skipstjóri
Það virðast lítil hátíðarhöld eiga að vera á Siglufirði á sjómannadaginn að sögn Ómars Geirssonar varaformanns Björgunarsveitarinnar Stráka, allavega hafa bæjaryfirvöld ekki haft samband ennþá sagði hann. Siglo.is fór rúnt um hafnarsvæðið í gær og leit inn hjá beitningarmönnum og í löndun og á endanum var svo litið inn hjá Fiskmarkaðinum.
Það er ekki annað að sjá á hafnarsvæðinu en þar sé allt á fullu og nóg að gera.



Reynir var 50 mín. með þennan bala og ætlaði að fara drífa sig heim í sólbað.



Gísli Súrsson heldur til veiða í blíðunni.



Þórkatla kemur til löndunar.



Bára SI var á höttunum eftir ýsu en þeir lönduðu 3 tonnum.



Lipur er lyftaramaðurinn Ægir Bergsson ekki fiskur útfyrir hjá honum.



15 bátar lönduðu hjá Fiskmarkaðinum í gær, milli 50 og 60 tonn sagði Steingrímur Óli.



Þá er bara að drífa fiskinn uppí flutningabíl og burt úr bænum.




Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst