Gömul ljósmynd

Gömul ljósmynd Siglo.is fékk ábendingu fyrir stuttu um það að fólk vildi fá að sjá gamlar ljósmyndir í bland við nýlegt efni. Við ætlum að reyna að bæta

Fréttir

Gömul ljósmynd

Siglo.is fékk ábendingu fyrir stuttu um það að fólk vildi fá að sjá gamlar ljósmyndir í bland við nýlegt efni. Við ætlum að reyna að bæta úr þessu og hér kemur fyrsta myndin.

Vonandi þekkist persónan á myndinni og einhver umræða skapast um hana. Jafnvel einhverjar gamlar sögur af þeim sem eru á myndunum.

Ég veit um einn Siglfirðing sem býr á suðurlandinu sem hefur annað slagið verið að setja inn gamlar myndir á facebook og hefur umræða skapast um þær persónur sem eru á myndunum.

Umræðan sem kemur við myndirnar er mjög oft lífleg og mjög skemmtilegt að lesa. Koma þá til dæmis margar sögur fram sem ungir jafnt sem eldri Siglfirðingar hafa gaman af. 

 
Við erum óendalega þakklát þegar við fáum svona ábendingar og í dag ætlum við að prufa að setja inn eina gamla mynd sem ekki hefur verið skrifað við og þá óskum við eftir ykkar aðstoð með myndina.
 
Ef þið þekkið til myndarinnar eða einhvern á myndinni þá megi þið endilega skrifa okkur línu í kommentakerfið okkar.
 
Takk fyrir góða ábendingu og vonandi kannist þið við þann sem er á myndinni.

Athugasemdir

04.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst