Þín heilsa - Þín skemmtun

Þín heilsa - Þín skemmtun Miðvikudaginn 2. febrúar n.k. verður Lífshlaupið, fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, ræst í fjórða sinn. Um 13.300 manns tóku

Fréttir

Þín heilsa - Þín skemmtun

Miðvikudaginn 2. febrúar n.k. verður Lífshlaupið, fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, ræst í fjórða sinn.
Um 13.300 manns tóku þátt í hlaupinu á síðasta ári og hafði þáttakendum fjölgað um 4000 á milli ára.
Þrenns konar form verður á hlaupinu þar sem hægt er að taka þátt í vinnustaðakeppni frá 2. -22. febrúar, fyrir 16 ára og eldri, hvatningaleik fyrir grunnskóla frá 2.-22. febrúar fyrir 15 ára og yngri og einstaklingskeppni þar
sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.
Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framalega sem hún nær ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um hreyfingu.
Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í 60 mínútur á dag hið minnsta og fullorðnir ættu að sama skapi að hreyfa sig í hálfa klukkustund að minnsta kosti hvern dag. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þáttöku á vefsíðu hlaupsins www.lifshlaupid.is

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.


Athugasemdir

14.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst