Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 6.-10. júlí 2011

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 6.-10. júlí 2011 Látum dansinn duna. Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður með glæsilegasta móti í sumar.

Fréttir

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 6.-10. júlí 2011

Látum dansinn duna. Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður með glæsilegasta móti í sumar.

Viðburðir á hátíðinni verða þriðjungi fleiri en undanfarin ár, bæði tónleikar og danssýningar, námskeið eru fyrir börn og fullorðna og uppskeruhátíð með suðrænum dönsum. Þá verður glæný tónlist frumflutt daglega.
  Dagskrá Þjóðlagahátíðar:

Hátíðin hefst með tónleikum Karlakórs Siglufjarðar þar sem tveggja máttarstólpa í tónlistarlífi Siglufjarðar á 20. öld er minnst, þeirra Bjarna Þorsteinssonar þjóðlagasafnara og tónskálds og Geirharðs Schmidt, stjórnanda Karlakórsins Vísis. Sungin verða lög Bjarna og útsetningar Geirharðs sem gerðu Vísi landsfrægan á sínum tíma.

Íslensk þjóðlög verða í öndvegi á hátíðinni. Kristín Ólafsdóttir syngur útsetningar Atla Heimis Sveinssonar á þulum og drykkjuvísum ásamt hljómsveit, sönghópurinn Voces Thules flytur forn söngkvæði með pípum og trumbuslætti og Háskólakórinn syngur íslensk þjóðlög í nýum útsetningum.

Tónlist frá Suður-Ameríku hljómar daglega á Þjóðlagahátíð. Tropicalia-sveit Kristínar Bergsdóttur leikur lög frá Brasilíu, Andrés Ramon og félagar kynna tónlistarhefð Kólumbíu og Salsaband Tómasar R. heldur dansleik.

Norræn tónlist og dansar verða einnig í brennidepli. Danshópar koma frá Íslandi, Noregi og Danmörku ásamt hljóðfæraleikurum, leikin verður sænsk þjóðlagatónlist og þjóðlög sem norskir og sænskir Vesturfarar tóku með sér til fyrirheitna landsins. Þá verða tónleikar helgaðir bluegrass-tónlist og tónlist breskra og franskra innflytjenda í Bandaríkjunum.

Ný tónlist verður leikin daglega á hátíðinni eins og áður segir. Sinfóníuhjómsveit unga fólksins frumflytur básúnukonsert eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, hörpu- og slagverksdúóið Dúó Harpverk frumflytur ný verk íslenskra tónskálda, Þórarinn Stefánsson píanóleikari leikur íslenska píanótónlist, Ólafía Hrönn og Tómas R. frumflytja sameiginlegan bræðing, þjóðlagahópurinn Mógil leikur eigin lög og síðast en ekki síst verða lög Oddgeirs Kristjánssonar flutt á sérstökum afmælistónleikum í tilefni af aldarafmæli hans.

Námskeið:

Að venju eru námskeið á þjóðlagahátíðinni margbreytileg svo allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi. Boðið er upp á námskeið í rímnakveðskap, íslenskum matarvísum og þjóðdönsum, salsa og suður-amerískri hljóðfæratónlist, kennd verður keðju- og skartgripgerð, refilsaumur, prjón og flókagerð og þeir sem vilja fræðast um sögu Siglufjarðar geta gengið með Örlygi Kristfinnssyni í spor Bjarna Þorsteinssonar þjóðlagasafnara og síldarspekúlanta frá fyrri hluta 20. aldar. Börn nemenda á námskeiðum fá ókeypis námskeið við sitt hæfi og að auki er þeim boðið á leiksýninguna Gýpugarnagaul sem Möguleikhúsið stendur fyrir, en hún byggir á munnlegum sagnaarfi okkar Íslendinga. Listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði er Gunnsteinn Ólafsson. Nánari upplýsingar um Þjóðlagahátíðina á Siglufirði má finna á www.folkmusik.is.

Texti og mynd: Aðsent.

 




Athugasemdir

21.maí 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst