Þjóðlagahátíðin áberandi
sksiglo.is | Almennt | 24.06.2009 | 15:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 584 | Athugasemdir ( )
Það er augljóst að Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður vel auglýst þetta árið. Í Reykjavík sér maður stór skilti sem segja „Allt með sykri og rjóma“, kjörorði Þjóðlagahátíðarinnar í dag.
Þessa frábæru ábendingu fengum við frá Birgi Ingimarssyni hjá auglýsingastofunni Taktík en hann smellti mynd af skiltinu á Höfðabakka. Auglýsingarnar má einnig finna víðar og er ein þeirra á Smáralindinni, einmitt á sama stað og Siglfirsku Alparnir voru auglýstir í vetur. Óhætt er því að segja að Siglufjörður sé orðinn áberandi í Reykjavík.
Athugasemdir