Þrettánda-diskó í Allanum

Þrettánda-diskó í Allanum Eftir Þrettándabrennuna og flugeldasýninguna sem Kiwanisklúbburinn Skjöldur sá um í gær var haldið beina leið á diskó í

Fréttir

Þrettánda-diskó í Allanum

Eftir Þrettándabrennuna og flugeldasýninguna sem Kiwanisklúbburinn Skjöldur sá um í gær var haldið beina leið á diskó í Allanum.
 
Kiwanisklúbburinn fékk góða aðstoð frá 10. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar sem sáu um að jólasveinarnir höguðu sér almennilega og að álfakonungur og drottning væru á staðnum.
 
Margir voru í grímubúningum og þar var hægt að sjá prinsessur, álfa, jólasveina, kisur og ja eiginlega bara alla flóruna í alls konar múnderingum og að sjálfsögðu voru þarna álfakonungur og álfadrottining.
 
Einhverjir hárlausir karlar fengu ljóst frekar sítt hár til að baða sig í og gátu þar af leiðandi rifjað upp gamla takta þegar þeir voru með hár.
 
Hér fyrir neðan eru svo myndir frá diskótekinu.
 
diskóLóa og Halli höfðu í nógu að snúast við að afgreiða á gosbarnum.
 
diskóÁlfadrottningin
 
diskóÁlfakonungurinn
 
diskó
 
diskó
 
diskóÞað væri algjör lúxus ef allir væru jafn fúsir til þess að láta taka myndir af sér og þessir tveir.
 
diskóAgnar Þór sveinsson kominn með sítt ljóst hár og hefur hreinlega aldrei verið glaðari sýnist mér.
 
diskóJói Ott byrjaði strax að sveifla ljósa hárinu um leið og hann fékk kolluna á hausinn og fannst þetta unaðslegt. "Mér líður eins og ég sé að leika í sjampó auglýsingu fyrir fallegt og heilbrigt hár" sagði hann.
 
 
 
 

Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst