Tilkynning frá Vinnumálastofnun

Tilkynning frá Vinnumálastofnun Þjónusta Vinnumálastofnunar við atvinnuleitendur á Siglufirði fluttist þann 12. október  til Vinnumálastofnunar á

Fréttir

Tilkynning frá Vinnumálastofnun

Þjónusta Vinnumálastofnunar við atvinnuleitendur á Siglufirði fluttist þann 12. október  til Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra.

Undanfarin 12 ár hefur þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra þjónað Siglfirðingum en með tilkomu Héðinsfjarðargangna er eðlilegt að sama skrifstofa sinni allri Fjallabyggð.

Á starfstíma stofnunarinnar hefur hún haldið fjölmörg námskeiða á Siglufirði og boðið upp á ráðgjöf og úrræði sem Siglfirðingar hafa nýtt sér vel. Samstarf við sveitarstjórnarmenn, starfsmenn bæjarfélagsins og atvinnurekendur hefur verið gott og með þeirra aðstoð hefur tekist að halda úti starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum sem hafa skilað góðum árangri.

Starfsfólk Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra vill þakka Siglfirðingum gott samstarf á liðnum árum og óskar þeim og samstarfsfólki á Norðurlandi eystra velgengni í framtíðinni. Sérstakar þakkir að lokum til starfsmanns Einingar Iðju á Siglufirði sem áfram mun sjá um móttöku og aðstoð við atvinnuleitendur.

Líney Árnadóttir, forstöðukona


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst