Tippararnir á Billanum
sksiglo.is | Almennt | 03.09.2013 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 605 | Athugasemdir ( )
Tippararnir voru mættir á Billann á laugardaginn stundvíslega klukkan 12.
Ágætis mæting var og mikið spjallað og skrafað um komandi
leiktíð (örugglega, ég hef ekki hundsvit á þessum fótbolta).
Jói Ott var eitthvað að reyna að útskýra þessi mál fyrir
mér. Hann sagði mér eitthvað og ég sagði "já" en ég er einfaldlega bara ekki nógu gáfaður fyrir þetta tipp.
En ég tók nokkrar myndir af fótbolta-tippara-pælingar-meisturunum þar sem
þeir voru að horfa á einhvern fótboltaleik þar sem einhverjir voru að keppa við einhverja aðra í fótbolta í bresku deildinni.







Athugasemdir