Tónleikar á Kaffi Rauðku í kvöld
Það fara fram skemmtilegir tónleikar í kvöld, fimmtudagskvöldið 1. ágúst, á Kaffi Rauðku á Siglufirði þar sem Gylfa Ægissyni er gert hátt undir höfði en tónleikarnir bera nafnið "Til heiðurs okkar ".
Þetta eru seinni tónleikarnir sem haldnir eru en þeir fyrri voru 26. ágúst og voru tónleikagestir ákaflega ánægðir með þá.
Tónleikar til heiðurs okkar
manni
Gylfa Ægissyni
Hljómsveitin Týr og sönghópurinn „Sex um borð“
Flytjendur úr Fjallabyggð: Stúlli, Dúi, Maggi, Bjössi,
Biggi, Tóti, Steini, Mundína, Finni og Danni
Í sól og sumaryl – Gústi guðsmaður - Ég hvísla yfir
hafið – Stolt siglir fleyið mitt
Minning um mann – Lífið á Sigló – Út
á gólf – Jibbí jei - og mörg önnur lög
Kaffi Rauðka fimmtudaginn 1. ágúst kl. 21:00
aðgangseyrir 2000 kr. í forsölu – 2500 kr. við inngang
Forsala aðgöngumiða á Kaffi Rauðku – 461 7733
Athugasemdir