Suðrænir dansar og nýr básúnukonsert

Suðrænir dansar og nýr básúnukonsert Sinfóníuhljómsveit unga fólksins heldur tvenna tónleika um helgina. Sunnudaginn 10. júlí kl. 14.00 leikur hún í

Fréttir

Suðrænir dansar og nýr básúnukonsert

Siglufjarðarkirkja.
Siglufjarðarkirkja.

Sinfóníuhljómsveit unga fólksins heldur tvenna tónleika um helgina. Sunnudaginn 10. júlí kl. 14.00 leikur hún í Siglufjarðarkirkju og mánudaginn 11. júlí í Neskirkju í Reykjavík kl. 20.00.

Á efnisskránni eru þrjú verk, þar af tvö glæný: Lancharan fyrir hljómsveit eftir Gunnar Karel Másson og Básúnukonsert eða Nokkrar danssenur fyrir básúnu og hljómsveit eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Loks verða leiknir dansar úr Carmen eftir Georges Bizet. Einleikari á tónleikunum er Ari Hróðmarsson básúnuleikari en stjórnandi Gunnsteinn Ólafsson. Aðgangseyrir er kr. 2000 en kr. 1.500 fyrir námsmenn, öryrkja og eldri borgara.

 
Ari Hróðmarsson lauk framhaldsprófi í básúnuleik frá Tónskóla Sigursveins og hélt síðan til framhaldsnáms við Tónlistarháskólann í Amsterdam, þaðan sem hann lauk BA-prófi árið 2010. Ari er meðlimur í Kammersveitinni Ísafold og einn af stofnendum Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins. Hann hefur sótt námskeið hjá mörgum helstu básúnuleikurum samtímans.
 
Gunnar Karel Másson (f. 1984) lauk vorið 2010 B.A.-námi í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands og stundar nú framhaldsnám Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson (f. 1958) samdi básúnukonsertinn sérstaklega fyrir Ara og Ungfóníu. Á meðal annarra verka hans eru Ljóðasinfónía, Máríuvísur, kammerverkið Stokkseyri, Skálholtsmessa, Sinfónía, óperan Söngvar haustsins og píanókonsertinn Orustan við Vínu. Tónlistin í Carmen eftir Bizet ber ótvírætt yfirbragð spænskrar þjóðlagatónlistar og „sviðsetur“ óperuna svo ekki verður um villst í Sevilla, hjarta Andalúsíu.
 
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Ungfónía, var stofnuð haustið 2004. Hljómsveitin er skipuð nemendum úr tónlistarskólum af höfuðborgarsvæðinu og við tónlistarháskóla erlendis á aldrinum 13-25 ára. Gunnsteinn Ólafsson (1962) er stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins og listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði.

 
Fyrir hönd Ungfóníunnar,

Gunnsteinn Ólafsson, stjórnandi, s.692-6030 gol@ismennt.is
Ari Hróðmarsson, einleikari, s.699-2598  the_trombonefan@hotmail.com
Skúli Þór Jónasson, formaður, s.693-9017  sthjonasson@gmail.com




Athugasemdir

08.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst