Tónlist og Jazz á Hannes Boy
sksiglo.is | Almennt | 05.04.2011 | 09:15 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 376 | Athugasemdir ( )
Á sunnudagskvöldið var Björn Thoroddssen, jazzgítaristi, og Gunnar Hrafnsson, kontrabassaleikari ásamt söngkonunni Margot Kiis, með tónleika í Hannes Boy.
Á mánudag voru þeir félagar með tónleika fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar í Siglufjarðarkirkju. Tónlist fyrir alla er verkefni sem hefur verið í gangi frá árinu 1994 og eru um 600 tónleikar á ári haldnir í grunnskólum landsins. Björn og Gunnar hafa verið í fararbroddi í íslensku tónlistarlífi síðastliðin aldarfjórðung.
Athugasemdir