Tónlistargjörningur í Herhúsinu á Siglufirði
Nokkrir gestir létu veðrið ekki aftra sér frá því að fara á tónlistargjörninginn í Herhúsinu á fimmtudagskvöldið.
Þar fluttu þau Regina Dürig og Christian Müller saman verk sín, hún nokkra texta sem hún hefur unnið að hér undir áhrifum frá umhverfinu og því sem hún hefur upplifað nú í janúar.
Christian lék á móti og með hinu talaða orði snilldarlega á bassaklarínettu.
Með þessum flutningi luku þau veru sinni á Siglufirði.
Áhugasamir geta kynnt sér verk þeirra á bloggsíðunni sem þau hafa haldið úti meðan á dvöl þeirra hefur staðið http://www.butterland.ch/island
Athugasemdir