Tónskóli Fjallabyggðar
sksiglo.is | Almennt | 10.02.2012 | 06:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 200 | Athugasemdir ( )
Tónleikar skólans verða í Tjarnarborg miðvikudaginn 15. febrúar kl. 18.00 Tónleikarnir verða notaðir til að velja nemendur og hljómsveitir, sem taka þátt í Nótunni uppskeruhátíð Tónlistarskólanna.
Dómnefnd verður skipuð góðu fólki úr Fjallabyggð, sem mun velja af kostgæfni, þá nemendur og hljómsveitir sem halda áfram í keppninni fyrir hönd skólans.Uppskeruhátíðin verður haldin í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 10 mars næstkomandi.
Auglýsingu má sjá hér
Texti og mynd: Aðsent
Athugasemdir