Trefillinn orðinn 3.510,88 metrar
sksiglo.is | Almennt | 12.05.2010 | 19:35 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 239 | Athugasemdir ( )
Vel hefur gengið að prjóna trefilinn hjá Fríðu og eru nú yfir 3 kílómetrar tilbúnir, enn þarf þó að prjóna um 13,5km í viðbót og því þörf fyrir mikið garn til viðbótar.
Hafa áhugasamir prjónaunnendur nú tekið á það ráð að prjóna trefilinn úr afgangsgarni sem þeir luma á og kviknaði því sú hugmynd að safna saman aukagarni sem fólk hefur annars ekki hug á að nota. Fríða tekur vel á móti þeim sem vilja gefa garn til verkefnisins.



Athugasemdir