Tvćr milljónir króna veittar í styrk til ađ smíđa 15. aldar bát

Tvćr milljónir króna veittar í styrk til ađ smíđa 15. aldar bát Tvćr milljónir króna hafa veriđ veittar í styrk til Hjalta Hafţórssonar á Reykhólum af

Fréttir

Tvćr milljónir króna veittar í styrk til ađ smíđa 15. aldar bát

Hjalti Hafţórsson
Hjalti Hafţórsson

Tvær milljónir króna hafa verið veittar í styrk til Hjalta Hafþórssonar á Reykhólum af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en fjármununum verður varið til smíði á báti samkvæmt teikningum í íslensku handriti frá 15. öld.

Hjalti er fæddur og uppalinn Siglfirðingur, sonur Hafþórs Rósmunds - Siglfirðings sem vann hjá Rauðku.

Fyrsti hluti verkefnisins var unninn "heima á Sigló" segir Hjalti, "Það er nú því miður þannig að ég er búsettur á Reykhólum um þessar mundir, þar sem eiginkonan mín var ráðin sveitarstjóri hérna."

"Ég var á Sigló síðastliðið sumar og haust við smíði Vatnsdalsbátsins í gamla slippnum. Það verkefni var styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneyti og Síldarminjasafni. Hvar þetta verkefni verður er enn óráðið, fer eftir því hvort ég fæ samstarfsaðila að verkefninu núna í ár".

"Styrkur ráðuneytanna er mér mikill heiður og vil ég koma á framfæri innilegu þakklæti.  Styrkur ráðuneytanna gefur vinnu minni og verkefnum aukið gildi og viðurkenningu, sem ekki er hægt að þakka nógsamlega fyrir",  segir Hjalti ennfremur.

 Bátur byggður á mynd úr Jónsbókarhandriti frá 15. öld

 Sjá einnig vefsíðu Hjalta

 

 


Athugasemdir

28.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst