Týr SK-33
sksiglo.is | Almennt | 21.01.2012 | 06:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 713 | Athugasemdir ( )
TÝR SK
33, stærsta skip Síldarminjasafnsins, er smám saman að ganga í
endurnýjun lífdaga - ekki sem veiðiskip heldur lifandi vettvangur til
skoðunar fyrir safngesti og til tónleikahalds.
Á myndinni er Sigurður Steingrímsson, starfsmaður JE vélaverkstæðis, að setja upp kompás-skyggni sem hann smíðaði. Viðgerð Týs er margháttuð og hefur staðið í mörg ár. Týr var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1946 og gekk til fiskveiða í ein 40 ár.
Síldveiðar munu hafa verið stundaðar á honum í kringum 1950 og hét hann á þeim árum Skrúður og Hrafn. Týr er stærsti sýningargripur safnsins 19 metrar á lengd og um 65 tonn að þyngd. Á safninu er hann útbúinn sem dæmigert síldarskip um miðja 20. öld.
Heimasíða: safn@sild.is

Athugasemdir