Umhverfisvæn fjáröflun hjá Glóa
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 09.09.2009 | 16:43 | | Lestrar 377 | Athugasemdir ( )
Glói hefur hafið samstarf við fyrirtækið Græn framtíð sem sérhæfir sig í endurnýtingu og endurvinnslu á raftækjum. Í kvöld, miðvikudaginn 9. sept. munu iðkendur og stjórnarmenn Glóa byrja að ganga í hús á Siglufirði og safna ónýtum/biluðum gsm símum, fartölvum, stafrænum myndavélum og mp3 spilurum til fjáröflunar fyrir félagið.
Þessi tæki fara til Grænnar framtíðar til flokkunnar, síðan til Bretlands til viðgerðar eða eru notuð í varahluti og tækin enda síðan sem söluvara í Afríku. Í ferlinu er spilliefnum úr tæjunum komið í endurvinnslu svo þau valdi ekki skaða í náttúrunni.
Fyrirtækið Græn framtíð ehf. sérhæfir í endurnýtingu og endurvinnslu á raftækjum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Markmiðið með starfseminni er að draga úr því magni rafeindabúnaðar sem endar á sorphaugum landsins og stuðla þannig að endurnýtingu og endurvinnslu á þessum búnaði í gegnum samstarfsaðila um heim allan. Jafnframt að stuðla að aukinni vitund um endurnýtingu og endurvinnslu á neysluvörum frá fyrirtækjum og einstaklingum.
Stjórn Glóa fagnar því að geta með þessu átaki stuðlað að aukinni endurvinnslu og endurnýtingu tækja sem annars mundu enda á sorphaugunum með tilheyrandi mengun. Í kjölfar þessa átaks mun verða hægt að losa sig við slík tæki í sérstakt ílát hjá SR-Byggingarvörum og mun Glói sjá um að koma þeim tækjum sem þangað er skilað til Grænnar framtíðar.

Athugasemdir