Undirbúningur Þjóðlagahátíðar
sksiglo.is | Almennt | 02.07.2010 | 07:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 357 | Athugasemdir ( )
Óttar Sæmundsen tónlistarmaður vinnur nú hörðum höndum að undirbúningi Þjóðlagahátíðar. Óttar er Siglfirðingum að góðu kunnur og koma hans í bæinn þýðir að Þjóðlagahátíðin er rétt handan við hornið.
Það er í mörg horn að líta þegar kemur að stórri hátíð eins og Þjóðlagahátíðinni. Verkefnin eru stór og smá en allt þarf þetta að vera á hreinu til þess að hlutirnir gangi vel fyrir sig.
Óttar var nýbúinn að bjarga hópi kvæðamanna um gistingu þegar fréttamann bar að garði og síminn stoppaði ekki hjá honum.
Allar nánari upplýsingar um hátíðina má finna hér.

Athugasemdir