Upprennandi ljóðskáld

Upprennandi ljóðskáld Í dag fór fram í Ráðhúsinu afhending viðurkenninga fyrir þrjú bestu ljóðin sem nemendur í 7.- 9. bekk Grunnskóla Siglufjarðar sömdu

Fréttir

Upprennandi ljóðskáld

Lísa Margrét Gunnarsdóttir & Hildur Örlygsdóttir
Lísa Margrét Gunnarsdóttir & Hildur Örlygsdóttir
Í dag fór fram í Ráðhúsinu afhending viðurkenninga fyrir þrjú bestu ljóðin sem nemendur í 7.- 9. bekk Grunnskóla Siglufjarðar sömdu út frá málverki að þeirra eigin vali.
Verkin eru í eigu Listasafns Fjallabyggðar. Útkoman var vægast sagt glæsileg og var úr vöndu að ráða fyrir dómnefndina, en krakkarnir sömdu tæplega 60 ljóð. Þeir krakkar sem áttu bestu ljóðin að mat dómnefndar voru, Guðrún Hulda Ólafsdóttir fyrir ljóðið Dúkkur, Lísa Margrét Gunnarsdóttir fyrir ljóðið Týnd og Hildur Örlygsdóttir & Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir fyrir ljóðið Græni Svanurinn. Dómnefndina skipuðu heiðursgestirnir Kristján Kristjánsson (sonur Kidda Rögg) og Ingi Seinar Gunnlaugsson (sonur Gunnlaugs Hjálmarssonar) en þeir eru báðir mikil ljóðskáld og hafa gefið út ljóðabækur. Eftir afhendingu viðurkenninganna höfðu þeir á orði að þeir hefðu ekki geta gert betur sjálfir. Það er greinilegt að það er mikill efniviður í siglfirsku krökkunum. Við hjá siglo.is óskum stelpunum innilega til hamingju! Myndir HÉR

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst