Úrslit í Skólahreysti

Úrslit í Skólahreysti Úrslit í Skólahreysti fara fram í dag 30. apríl. Keppnin fer fram í Laugardalshöll og er henni sjónvarpað beint á Rúv og hefst

Fréttir

Úrslit í Skólahreysti

Glæsilegir fulltrúar Siglufjarðar.
Glæsilegir fulltrúar Siglufjarðar.
Úrslit í Skólahreysti fara fram í dag 30. apríl. Keppnin fer fram í Laugardalshöll og er henni sjónvarpað beint á Rúv og hefst útsending klukkan 20:00. Grunnskóli Siglufjarðar keppir og er það í þriðja sinn sem krakkarnir okkar taka þátt í úrslitum keppninar, öll árin sem GS hefur tekið þátt.
Keppendur Grunnskólans að þessu sinni eru þau Arnar Már Sigurðarson, Guðrún Ósk Gestsdóttir, Alexander Örn Kristjánsson og Svava Stefanía Sævarsdóttir. Krakkarnir hafa æft vel undanfarið og eru klár í slaginn, þau hafa einnig gengið í fyrirtæki og safnað svo að krakkarnir í efra húsi geti komið með suður og hvatt þau til dáða í keppninni. Margir hafa styrkt krakkana í skólanum og gert þeim kleift að fara suður með rútu og taka þátt í þessari skemmtilegri upplifun. Miklar þakkir fá Sparisjóðurinn, rammi hf, ÍBS, Rauðka, Kristján Möller, Fiskmarkaðurinn, Egilssíld, Aðalbakarinn, Jako, Reebok, KS, Siglósport, Apótekið, Allinn, Fiskbúðin, Úrval, Kambur, Söluturninn, Tunnan, Efnalaugin, SR-byggingavörur, Olís, Fjallabyggð og eflaust fleiri sem styrkt hafa þetta verkefni.
Róbert íþróttakennari segir að krakkarnir hafa verið rosalega dugleg að æfa og eru til alls líkleg í keppninni, en bendir á að í keppninni í ár eru margir góðir skólar og það þarf allt að ganga upp ef við eigum að ná í verðlaunasæti, eins og í fyrra, þar sem liðið lenti í 3.sæti eins og margir muna eftir. Enn, það er allt hægt.
Til gamans er hér besti árangur krakkanna í keppninni:
Arnar                      
Upphífingar.........30
Dýfur.................48
Guðrún                   
Armbeygjur........ 59             
Hreystigreip........ 3:14
Alex og Svava        
Hraðabraut......2:19

Allir að fylgjast með krökkunum okkar á fimmtudaginn klukkan 20:00 á Rúv.



Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst