Úrslit Norðurlandsmótsins – glæsilegur árangur TBS

Úrslit Norðurlandsmótsins – glæsilegur árangur TBS Norðurlandsmótið í badminton fór fram í íþróttahúsinu á Siglufirði síðastliðinn laugardag og stóðu

Fréttir

Úrslit Norðurlandsmótsins – glæsilegur árangur TBS

Norðurlandsmótið. Ljósmyndari; María Jóhannsdóttir
Norðurlandsmótið. Ljósmyndari; María Jóhannsdóttir

Norðurlandsmótið í badminton fór fram í íþróttahúsinu á Siglufirði síðastliðinn laugardag og stóðu Siglfirðingar sig þar með mikilli prýði. Arnar Þór Björnsson og Daníela Jóhannsdóttir urðu þrefaldir Norðurlandsmeistarar.

 

María Jóhannsdóttir sendi okkur myndir og yfirlit yfir úrslitin mótsins en þetta var síðasta mót vetrarins og gekk það vel í alla staði. Vildi hún nýta tækifærið og koma á framfæri sérstökum þökkum til allra þeirra sem hafa aðstoðað í vetur í ferðalögum, við undirbúning og framkvæmd Norðurlandsmótsins og þakka foreldrum fyrir samstarfið í vetur.

Úrslit:
Arnar Þór Björnsson og Daníela Jóhannsdóttir urðu þrefaldir Norðurlandsmeistarar (Einliðaleik.- Tvíliðaleik. – Tvenndarleik).
TBS  var með alls  13 titla (14 gull og  14 silfur  í unglingaflokkum:   5 gull og 6 silfur  í fullorðinsflokkum)
TBA með 6 titla
Samherji með 3 titla

Fleiri myndir frá mótinu má sjá hér

 


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst