Útgerðarfélagið Bylur ehf
sksiglo.is | Almennt | 22.10.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 754 | Athugasemdir ( )
Ég kom við á bryggjunni um klukkan 19 í gærkvöldi, mánudagskvöldið 21. okt.
Ástæðan fyrir þessum bryggjurúnti svona rétt fyrir kvöldmat var
sú að ég fékk fréttir af því að það væri nýr bátur að bætast í flota Siglfirðinga og nýtt
útgerðarfélag að bætast í hóp þeirra sem fyrir eru.
Þeir feðgar Tómas Óskarsson og Örvar Tómasson voru að stofna
útgerðarfélag. Eins og mér skildist til, þá ætla þeir feðgar að gera bátinn út á línu.
Nafnið á útgerðinni er Útgerðarfélagið Bylur ehf. og
báturinn mun fá nafnið Kaldi.
Ég náði nokkrum myndum af því þegar Örvar sigldi bátnum
inn í Siglufjarðarhöfn. Ég náði líka nokkrum myndum af mótökunum sem hann fékk þegar hann lagði að landi.
Við óskum þeim innilega til hamingju með þetta allt saman og megi þeim
vegna vel.


Tómas Óskarsson til vinstri og Örvar Tómasson til hægri.

Gunni Óðins kom og aðstoðaði þá feðga við það að
festa bátinn við bryggju.

Margir komu til að samgleðjast þeim feðgum.

Móttökurnar voru ekki af verri endanum.
Athugasemdir