Úthlutun úr Menningarsjóði Sparisjóðsins

Úthlutun úr Menningarsjóði Sparisjóðsins Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar var stofnaður 25. febrúar 2003. Í tilefni af kaupum Sparisjóðs Mýrasýslu

Fréttir

Úthlutun úr Menningarsjóði Sparisjóðsins

Stjórn Menningarsjóðs Ólafur Jónsson, Bogi Sigurbjörnsson og Guðrún Árnadóttir
Stjórn Menningarsjóðs Ólafur Jónsson, Bogi Sigurbjörnsson og Guðrún Árnadóttir
Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar var stofnaður 25. febrúar 2003. Í tilefni af kaupum Sparisjóðs Mýrasýslu á öllu stofnféi Sparisjóðs Siglufjarðar til styrktar menningarmálum í byggðalaginu.

Stofnféið var 15 milljónir. En nú eru í sjóðnum 25 milljónir.


Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til hvers konar menningar-og líknarmála á Siglufirði. Þrír einstaklingar skipa stjórn. Einn er fulltrúi Sparisjóðsins, sem valin er af stjórn á hverjum tíma og er hann jafnframt formaður stjórnar. Annar er valin af bæjarstjórn, sá þriðji valin af sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju.
Árlegar tekjur sjóðsins eru auk vaxta og verðbóta, framlög sem aðalfundur sparisjóðsins kann að ákveða honum hverju sinni, og önnur framlög sem berast kunna.
Úthlutun styrkja fór fram í Allanum fimmtudaginn 5. maí kl. 20:00

Eftirtaldir fengu styrki: 

Siglfirðingur.is Rekstur  50.000
Hrönn Einarsdóttir Ljósmyndasýning 50.000
Jóna Guðný Jónsdóttir Steinaflatir 50.000
Fríða Gylfadóttir Frágangur á trefli 50.000
Elías Þorvaldsson Útsetning á kórlögum í tölvutæku formi 50.000
Gospelkór Námskeiðskostnaður 50.000 
Siglufjarðarkirkja Efniskaup vegna barnastarfs kirkjunnar 50.000
Arnfinna Björnsdóttir Sýning á vinnustofu 50.000
Vorboðakórinn, kór eldri borgara Rekstrarstyrkur 50.000
Hljómsveitin heldri menn Útgáfa á disk 50.000
Systrafélag Siglufjarðarkirkju Endurbætur á safnaðarheimili 50.000
Sjálfsbjörg Rekstur vinnustofu 50.000 
Karlakór Siglufjarðar Rekstur 50.000
Lára Stefánsdóttir Ljósmyndasýnng í Bátahúsi 50.000
Síldarminjasafnið Bátasmíði 75.000 
Félag um Ljóðasetur Íslands Veggspjöld 100.000
Leikfélag Siglufjarðar Uppsetning á leikriti 100.000
Herhúsfélagið Endurbygging Gránufélagsverslunar 250.000
     

                                                Samtals: 1.225.000



Styrkþegar og stjórn Menningarsjóðs.



Karlakór Siglufjarðar stjórnandi Guðrún Ingimundardóttir.



Hjálmar Jónsson spilar á harmonikku.



Gestir.



Gestir.



Gestir.



Gestir.



Gestir.



Boðið upp á kaffi.

Ljósm. GJS




 







Athugasemdir

09.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst