Útvarpsráð Fm.Trölla
Fundur hjá Útvarpsráði Fm.Trölla
Útvarpsráð Fm.Trölli hélt fund nýlega til þess að fara yfir dagskrá komandi vetrar.
Mikið var rætt og spjallað og ógrynni hugmynda var komið á framfæri. Andri og Siðlausu stúlkurnar reyttu af sér brandarana, bæði
siðlausa og ekki. Gunnar Smári og Gulli Stebbi reyndu að hafa stjórn á þessu en það er víst hægara sagt en gert þegar siðleysingjar
eru annars vegar. Við Steini Sveins sátum svo eins og 10 ára skóladrengir og hlustuðum agndofa á "reynslumeira" fólkið í alls konar málum
ræða alls konar mál sem við skildum ekkert í og ég held að við munum aldrei skilja sökum þess hve einfaldar og viðkvæmar sálir
við Steini erum (allavega ég).
Einhverjar breytingar munu verða á útsendingartíma einhverra þátta hjá stöðinni og áætlað er að bæta við
þáttum, færa til þætti, halda Tröllapartý o.sv.fr.
Þetta er góð þróun og útvarpið er alltaf að styrkjast og bæta við sig hlustun sem er alveg meiriháttar
Áfram Fm.Trölli!!
fm.trolli.is á netinu og bylgjulengd 103,7MHz á Tröllaskaga
Athugasemdir