Varðliðar umhverfisins
Bæjarbúum er vel kunnugt orðið verkefni 6. bekkjar grunnskóla Siglufjarðar sem fylgst hefur með ferðum jaðrakunnar síðastliðin ár.
Á þriðjudaginn afhenti umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, 6. bekk viðurkenningu fyrir verkefni sitt. Svandís lýsti ánægju sinni á þessu frábæra verkefni og hvernig það hafði tengt bekkinn við annan bekk í Írlandi. Hafði hún orð á því að þetta væri lýsandi dæmi um það hvernig „náttúran tengir fólkið“ en það var einmitt eitt af kjörorðum þeim sem 6. Bekkur hafði notað í kynningu sinni á verkefninu. Í kjölfar þess að Svandís veitti bekknum viðurkenninguna afhenti bekkurinn henni barmmerki verkefnisins sem og hún þáði með þökkum.
Fleiri myndir af athöfninni má sjá HÉR.





Athugasemdir