Veðurblíða á Sigló

Veðurblíða á Sigló Veðurblíðan hefur ekki farið fram hjá Siglfirðingum og páskagestum þessa dagana og útlit er fyrir áframhaldandi hæglátt veður,

Fréttir

Veðurblíða á Sigló

 Brakandi blíða á Sigló. Ljósmynd; Helga Sigurbjörnsdóttir
Brakandi blíða á Sigló. Ljósmynd; Helga Sigurbjörnsdóttir
Veðurblíðan hefur ekki farið fram hjá Siglfirðingum og páskagestum þessa dagana og útlit er fyrir áframhaldandi hæglátt veður, léttskýjað og hlýindi. Eins og páskarnir best geta orðið.



Í morgunsárið var sjórinn í Siglufirði spegilsléttur, dúnalogn var úti, veður hlýtt og eins og best verður á kosið. Páskarnir leika því við skíðaiðkendur í Siglfirsku Ölpunum sem notið geta útiverunnar til hins ýtrasta.

Nóg annað er einnig í boði fyrir gesti og gangandi og má þar nefna tónleika með Vönum Mönnum, Eyþóri Inga, Gómum og Ný Dönsk. Skoðunarferð í galleríin og söfnin og síðan eru veitingastaðirnir að sjálfsögðu opnir fyrir svanga vegfarendur.



Ljósmynd: GS


Æfing fyrir Andresar Andar leika. Ljósmynd: GS


Athugasemdir

09.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst