Veiðarfæraverslun Sig. Fanndal

Veiðarfæraverslun Sig. Fanndal Það mætti halda að Siggi Fanndal sé búinn að opna veiðarfæraverslun sína aftur miðað við þessa mynd sem tekin var nú fyrir

Fréttir

Veiðarfæraverslun Sig. Fanndal

Siggi og Rósa í versluninni
Siggi og Rósa í versluninni
Það mætti halda að Siggi Fanndal sé búinn að opna veiðarfæraverslun sína aftur miðað við þessa mynd sem tekin var nú fyrir nokkrum dögum. Verslunarstjórinn í búðinni sinni gömlu klæddur afgreiðslusloppnum og virðist ekki árinu eldri en á fyrri tíð. En ekki er allt sem sýnist því þarna er hann mættur í Bátahúsið þar sem veiðafæraverslunin hefur verið endurgerð til sýningar. Með honum á myndinni er Rósa Húnadóttir þjóðfræðingur á Síldarminjasafninu sem stjórnar skráningu safngripa og skipuleggur viðtöl heimildamanna. Og ekki er að spyrja að því hve mikilvægu hlutverki Sigurður Fanndal gegnir þarna.  Frásagnir Sigga voru kvikmyndaðar og með þeirri skráningu lögð drög að heimildamyndagerð síðar. 

Athugasemdir

20.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst