Veiðislútt við Fljótaá
www.salmon.is | Almennt | 17.09.2010 | 16:05 | Sigríður María Róbertsdóttir | Lestrar 316 | Athugasemdir ( )
Eins og fram kemur á vef Stangveiðifélags Siglufjarðar, http://www.salmon.is/, þá mun félagið halda veiðislútt við Fljótaá næstkomandi sunnudag eftir hádegi. Áætlun er um að hittast að Hvammi í Fljótum á laugardagskvöldinu og borða saman fyrir þá sem það vilja og sofa þar. Við höfum alla ánna til umráða á sunndeginum eða frá kl. 15 til 21. Einnig er ráðgert að halda fljótlega haustfund eins og var alltaf gert hér í eina tíð. Áhugasamir félagar vinsamlega tilkynnið þátttöku til Gulla Stebba í síma 868-7291 fyrir kl.15 á laugardaginn. Á vef angling.is má sjá að 8. september var búið að veiða 255 laxa í Fljótaá og má því ætla að það styttist verulega í 300 laxa markið.




Athugasemdir