Vinjettuhátíð í Ljóðasetrinu þann 18. mars
sksiglo.is | Almennt | 13.03.2012 | 06:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 348 | Athugasemdir ( )
Sunnudaginn 18. mars nk. frá kl. 20.00 til 22.00. mun Ármann Kr. Reynisson verða með
Vinjettuhátíð í Ljóðasetrinu.
Þar mun Ármann lesa úr verkum sínum ásamt nokkrum nemendum Menntaskólans á Tröllaskaga, kvæðafólk úr Rímu mun kveða íslensk þjóðlög og Sturlaugur Kristjánsson og Þórarinn Hannesson leika tónlist á milli atriða.

Svona vinjettudagskrár hafa verið haldnar vítt og breytt um landið undanfarin ár og verið vel sóttar. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis, kaffi og meðlæti verður til sölu í hléi.
http://ljodasetur.123.is/
Myndir: GJS
Athugasemdir