Vetradagskrá á Skálahlíð
sksiglo.is | Almennt | 03.09.2010 | 14:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 309 | Athugasemdir ( )
Það er óhætt að segja að eldri borgarar á Siglufiðri hafi ávalt nóg fyrir stafni og hefur Siglo.is fylgst með ferðum þeirra og skemmtunum síðastliðin ár. Vetrardagskráin 2010 liggur nú fyrir og hefst hún mánudaginn 6. september.
Í hverri viku er á nógu að taka á Skálahlíð og má þar helst nefna félagavist, föndur, boccia, bæjarferðir, vatnsleikfimi, bingó og myndasýningar. Er þetta allt að undanskildum þeim skipulögðu ferðum sem félag eldri borgara fer.
Skoða má dagskránna betur með því að klikka á myndina að ofan en Helga Hermannsdóttir veitir frekari upplýsingar í síma 467-1147.




Athugasemdir