Vinabæjarmótið rifjað upp á aðalfundi Norrænafélagsins

Vinabæjarmótið rifjað upp á aðalfundi Norrænafélagsins Í dag, laugardaginn 30.okt, klukkan 15:00 heldur Norrænafélagið aðalfund sinn í húsnæði Einingar

Fréttir

Vinabæjarmótið rifjað upp á aðalfundi Norrænafélagsins

Í dag, laugardaginn 30.okt, klukkan 15:00 heldur Norrænafélagið aðalfund sinn í húsnæði Einingar Iðju en þar verður vinabæjarmótið frá því í sumar meðal annars rifjað upp.

Á fundinum verður næsta vinabæjarmót einnig kynnt og hafa eflaust margir áhuga á því að sjá hvað er á döfinni þar.

Vinabæjarmótið sem haldið var á Siglufirði í sumar gekk afskaplega vel enda hafði ötullega verið unnið að skipulagningu þess í marga mánuði. Nefndin fékk aðstöðu á skrifstofum Rauðku við Suðurgötu 10 þar sem fundað var reglulega til að skipuleggja næstu skref. Þegar helgin rann svo loks upp þá var ekki betur að sjá en að vinabönd Siglufjarðar hefðu styrkst enn betur og að vinir bæjarins færu allir heim með bros á vör eftir vel heppnaða ferð.


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst