Vínbúðin á Siglufirði
Vínbúðin á Siglufirði er nú glæsileg eftir gagngerðar breytingar. Frá því að húsið var reist á árunum
1944-1945 hefur verið starfrækt vínbúð í húsnæðinu og var húsið upphaflega byggt undir starfsemi hennar.
Vínið hefur verið afgreitt yfir borðið þar til í þessum mánuði þegar búðinni var breytt í
sjálfafgreiðsluverslun, og hefur hún því haft sérstöðu hvað það varðar. Áfengis og tóbaksverslun ríkisins hefur
unnið að því að samræma útlit Vínbúða sinna um land allt á undanförnum árum og nú var komið að
búðinni hér á Sigló, en ÁTVR rekur 49 verslanir um land allt. Það verður vissulega missir af því að fá ekki lengur
þá persónulegu þjónustu sem við Siglfirðingar höfum vanist i gegnum tíðina, en vafalítið verður þessi breyting til
batnaðar fyrir viðskiptavini og ekki síst starfsfólkið. Aðeins fjórir verslunarstjórar hafa starfað í versluninni frá upphafi en
þeir eru, Bjarni Kjartansson, Bjarni Jóhannesson, Gottskálk Rögnvaldsson sem starfaði í 43 ár og að síðustu Ómar Möller.
Ómar hefur verið verslunarstjóri í 12 ár og nú vinnur dóttir hans Eygló Möller við hlið hans. Fyrsta vínbúðin var
opnuð hér á Siglufirði árið 1932. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá er vínbúðin afar glæsileg.
Þeir sem komu að verkinu eru, Berg ehf. sem sá um alla smíðavinnu, Helgi Magnússon sá um pípulagnir, Raffó ehf. um rafmagn og lýsingu og
Málaraverkstæðið sá um alla málningarvinnu. Innréttingarnar voru allar smíðaðar í Mosfellsbæ. Myndir HÉR
Allt er vænt sem vel er grænt!
Athugasemdir