Vítaspyrnukeppni Mumma
sksiglo.is | Almennt | 27.10.2012 | 23:23 | Gunnar Smári Helgason | Lestrar 777 | Athugasemdir ( )
Síðasta sunnudag kl 13.00 hélt Guðmundur Þorgeirsson ( Mummi Þorgeirs) sína árlegu vítaspyrnukeppni á sparkvelli við grunnskólann Norðurgötu.
Keppnin er fyrir 12 ára og yngri. Mummi er ekki alveg viss en telur að þetta sé nálægt tuttugustu keppninni sem hann heldur.
Fyrstu keppnirnar fóru fram á gamla malarvellinum við Túngötu.
Í ár tóku þátt nálægt 15 strákum þátt. Fyrirkomulagið er þannig hjá Mumma að allir taka 5 vítaspyrnur. Sá eða þeir sem skora úr flestum spyrnum vinna.
Ef tveir eða fleiri skora úr 5 spyrnum þá keppa þeir sín á milli með því að taka 3 spyrnur. Þannig nær hann niðurstöðu.
Mummi veitir verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin.
Í ár voru úrslitin þannig:
1. sæti Jóel
2. sæti Hjörvar
3. sæti Guðmundur
þeir eru allir jafnaldrar - fæddir árið 2000.
Það má einnig geta þess að Mummi spilar sjálfur fótbolta með KS oldboys. Það gerir hann þrátt fyrir aldur og veikindi.

Athugasemdir