Vöfflumessan á sunnudaginn var

Vöfflumessan á sunnudaginn var Síðasti sunnudagur var sannkallaður lúxusdagur í Kirkjuskólanum. Bíó-popp-vöfflur og allt mögulegt alveg ómótstæðilega

Fréttir

Vöfflumessan á sunnudaginn var

Síðasti sunnudagur var sannkallaður lúxusdagur í Kirkjuskólanum.
 
Bíó-popp-vöfflur og allt mögulegt, alveg ómótstæðilega gott. 
 
Það er eins og fréttirnar af vöfflumessunni hafi spurst út því óvenju mikið var af feðrum í kirkjunni þennan dag og eru þeir þó duglegir að mæta annars. Svo þegar sagt var gjörið svo vel, ruddust þeir að borðinu til þess að ná í beztu vöfflubitana.
 
Ég að sjálfsögðu fylgdist vel með Viðari, Sigga og frú Vilborgu Rut því mér fannst ég sjá grilla í Nóa konfekt einhverstaðar á bak við. ( Já, ég fann út úr því hvar þau geyma konfektið, en Siggi hafði víst keypt það á eigin kostnað til að deila því út meðal verðugra neytenda, syndlítilla- eða lausra. Ég fékk því ekkert, eins og gefur að skilja). 
 
Næsta sunnudag verður frí í Kirkjuskólanum. Kirkjuskólinn fylgir skólastarfinu og vetrarfrí verður í skólum hér.
 
vofflumessaGuðmundur Gauti var með þeim fyrstu að hlaðborðinu og fast á hæla hans var Doddi Bjarna.
 
vofflumessaKristinn Kristjánsson stendur hér sársvangur við borðið.
 
vofflumessaÓli Guðbrands í fyrstu ferð. En þess má geta að Óli hefur ekki þorað að sleppa einni einustu messu í vetur af ótta við það að missa af vöfflunum.
 
vofflumessaÓli í vöffluferð 2.
 
vofflumessaHér eru Mikael, Sigurður og Guðbrandur að dást að Óla Guðbrands við vöffluborðið.  Rut hins vegar hlær að þessu öllu saman og biður eitt af verðandi fermingarbörnum að fara og baka meira af vöfflum svo börnin fái nú eitthvað.
 
vofflumessaOg svo er Óli á leiðinni í þriðju vöfflu-ferðina hér.
 
vofflumessaFinnur Yngvi beið frekar óþolinmóður eftir því að Óli Guðbrands, Kristinn Kristjáns, Guðmundur Gauti og Doddi Bjarna væru búnir að raða vöfflum á sína diska.
 
vofflumessaHeimir Kokkur á Hannes boy hefur ekki sést í messu áður. En svo allt í einu er vöfflumessa og þá mætir hann. Við hlið hans er Ingunn kona Heimis en það er gaman að segja frá því að hún er kokkur á Rauðku. Hér sést hún vera útskýra fyrir syni þeirra af hverju pabbi hans sé svona óþolinmóður að komast að vöffluborðinu.
 
vofflumessaTakið eftir aðdáunarsvip Skarphéðins, en hérna var Siggi prestur að sýna Skarphéðni hvernig hann getur látið eina vöfflu með sultu og rjóma hverfa í einum bita. Og já, Siggi fór bara nokkuð létt með vöfflugleypingarnar.
 

Athugasemdir

01.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst