Yfirlýsing frá Konráði Baldvinssyni
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 01.10.2009 | 16:23 | | Lestrar 1048 | Athugasemdir ( )
Vegna frétta á sksigló.is þann 29.sept sl. og yfirlýsingar Andrésar Magnússonar, yfirlæknis, í gær, vil ég koma eftirfarandi á framfæri við starfsmenn stofnunarinnar og bæjarbúa. Eins og flestir vita ákvað ráðherra að sameina Heilsugæslu Ólafsfjarðar og Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar í Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar frá og með 1.janúar næstkomandi.
Ráðherra fól mér að sjá um undirbúning sameiningar í samstarfi við starfshóp í ráðuneytinu, jafnframt skipaði ráðherra mig forstjóra nýrrar stofnunar.
Við sameininguna verða störf framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar lögð niður á báðum stöðum og gerði ég stjórnendum grein fyrir því að núverandi staða þeirra yrði lögð niður en bauð þeim jafnframt starf hjá nýrri stofnun. Ég vil taka það fram að sameiningar heilbrigðisstofnana hafa átt sér stað á Austurlandi, Suðurlandi og nú verið að sameina stofnanir á Vesturlandi og er sami háttur hafður á með að leggja niður störf yfirmanna og nýjir yfirmenn ráðnir að nýrri stofnun.
Á framkvæmdastjórnarfundi 16. sept. síðastliðin, utan dagskrár, fór ég yfir það með Andrési Magnússyni, framkvæmdastjóra lækninga og Önnu S. Gilsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar að staða þeirra yrði lögð niður. Andrés lýsti því þá yfir við mig, að fyrra bragði, að hann vildi ekki taka við framkvæmdastjórastöðu lækninga hinar nýju stofnunar. Andrés stakk jafnframt upp á því að verðandi starfsmaður Ásgeiri H. Bjarnasyni, framkvæmdastjóra lækninga við Heilsugæslu Ólafsfjarðar yrði fenginn til að gegna starfinu. Með þessu var Andrés að viðra þá skoðun sína að það væri gott að læknar skiptust á að vera framkvæmdastjórar, sem er að mörgu leiti góð hugmynd, þannig kynnast læknar betur rekstrarhlið stofnunar.
Ég ræddi við Ásgeir, en hann taldi sig ekki vera tilbúinn að taka við stöðunni núna en væri tilbúinn að taka við stöðunni eftir 2 ár. Ég ræddi þá við Valþór Stefánsson, lækni, og var hann tilbúinn að taka að sér framkvæmdastjórastöðuna svo framarlega að Andrés og Ásgeir væru því samþykkir. Valþór lagði þunga áherslu á að fullkomin sátt væri um þá ákvörðun.
Eftir að Valþór hafði rætt við Andrés og Ásgeir tilkynnti hann mér að hann væri tilbúin að taka starfið að sér tímabundið enda hefðu þeir báðir lýst yfir stuðningi við hann og þetta fyrirkomulag.
Á fimmtudagsmorgun 25.september síðastliðin kl. 8:15 átti ég fund með Andrés þar sem við fórum yfir það samkomulag að Valþór yrði framkvæmdastjóri lækninga nýrrar stofnunar næstu tvö árin og lýsti hann því þá yfir að hann væri mjög sáttur. Ég vil taka það fram að ég þurfti ekki samþykki Andrésar Magnússonar til að skipa í stöðu framkvæmdastjóra en vildi vera viss um að sátt væri um þessa skipun mála innan stofnunar þar sem fáir vinna náið saman. Við vorum einnig ásáttir á að boða til starfsmannafundar þriðjudaginn 29. sept. til að tilkynna starfsmönnum niðurstöðuna og ég myndi síðan funda með starfsfólki Heilsugæslu Ólafsfjarðar daginn eftir. Á fundinum sýndi ég einnig Andrés uppkast af bréfi, sem hann fékk afrit af, þar sem kom fram að staða hans yrði lögð niður frá og með 1. janúar næstkomandi og jafnframt að hann ætti rétt á biðlaunum ef hann vildi ekki þiggja nýtt starf hjá nýrri stofnun. Í sama bréfi bauð ég honum starf læknis hjá nýju stofnuninni og það sendur. Ég vil taka það fram að Andrés gaf mér ekki yfirlýsingu um það hvort hann tæki við nýju starfi, hann vildi hugsa sinn gang og ræða við sína fjölskyldu, enda var ekki ástæða til þess að hann gæfi mér svar sitt á þeirri stundu.
Á fjölmennum starfsmannafund þann 29. sept. sl. fór ég yfir það samkomulag sem ég taldi að væri komið á um skipan framkvæmdastjóra lækninga og aðdraganda þess og gerði ég ráð fyrir að Andrés mundi gera það sama. Samkomulagið fólst í því að Valþór Stefánsson yrði framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar, og þar með faglegur yfirmaður lækninga á Siglufirði og Ólafsfirði, Ásgeir H. Bjarnason yrði yfirlæknir heilsugæslu Ólafsfjarðar. Anna, núverandi framkvæmdastjóri hjúkrunar, yrði framkvæmdastjóri hjúkrunar nýrrar stofnunar og þar með faglegur yfirmaður hjúkrunar á Siglufirði og Ólafsfirði. Rut María Pálsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar við Heilsugæslu Ólafsfjarðar, yrði yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslunnar á Ólafsfirði. Starfsheitið yfirlæknir og yfirhjúkrunarfræðingur er samkvæmt reglugerð nr. 787/2007 um heilsugæslu sem rekin er undir heilbrigðisstofnun. Einnig fór ég yfir þá stöðu sem fram undan er þ.e.a.s. að skera þarf niður rekstur um 39.5 m á næsta ári og að mestu yrði um vinnulaun að ræða. Á þessu ári þarf stofnunin að skera niður 56.2 m eða samtals 95.7 m á tveim árum. Því miður snérist umræðan á fundinum ekki um þessar staðreyndir
Eins og að framan greinir verða stöður stjórnenda núverandi stofnunar lagðar niður frá og með 1.janúar nk. eins og lög og reglugerðir gera ráð fyrir þegar sameining stofnanna á sér stað og nýjar stöður í nýrri stofnunni koma í þeirra stað, og mér sem forstöðumanni ber að tilkynna stjórnendum og starfsmönnum það. Það verður að gera greinarmun á því hvort staða er lögð niður eða starfsmanni sagt upp störfum af annarri ástæðu.
Einnig vil ég benda á að yfirlæknir er undirmaður framkvæmdastjóra lækninga samkv. nýjum heilbrigðislögum og þar með ekki yfirmaður stofnunar.
Ágætu samstarfsmenn og bæjarbúar Fjallabyggðar. Ég vil með ofangreindu skýra mitt sjónarmið. Ég hef starfað sem forstöðumaður Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar í rúm átta ár og alltaf reynt að vinna af samviskusemi og sátt við starfsmenn og bæjarbúa að uppbyggingu stofnunarinnar og bættrar aðstöðu skjólstæðinga og starfsmanna.
Siglufirði 01.okt. 2009
Með vinsemd og virðingu;
Konráð Karl Baldvinsson
forstjóri
Athugasemdir